SO dramatic and SO true hahaha
Ég legg til að allur matur - sérstaklega sætindi - verði gerður hollur
svo maður geti borðað hann öllum stundum án þess að fá samviskubit.
Og ég þarf nú ekki að taka það fram í þessari tillögu að það er algjört
skilyrði að allt bragð haldist alveg eins. Nú þarf bara einhver að græja þetta!
Fékk minn fyrsta iPhone í hendurnar í seinustu viku. Keypti notað stykki af bróður mínum. Fyrst var ég e-ð voða stressuð, hrædd um að fokka þessu upp og kunna ekki neitt á tólið. En þetta er svo idiot proof að hálfa væri. Og þetta er ógeðslega gaman. Ég veit - ég er algjör lúði. Halldór spurði mig daginn eftir að ég fékk símann hvort ég væri að safna camerum - fyrsta síðan er semsagt öll vaðandi í allskonar cameru-öppum .. mikil gleði :) Ég er meiraðsegja komin með dagbók - appið heitir Secret Diary .. bleik og girly auðvitað - sagði að ég væri lúði! Stök snilld síðan að geta kjaftað í símann við frænku mína í USA og það án þess að borga.
Eeeeen appið sem mig langaði mest að segja ykkur frá og sem ég uppgötvaði í dag er Cash Journal. Ég kann sko núll með peninga að fara, engin lygi.. og engar fréttir fyrir þá sem þekkja mig vel. Eeeeen núna? Núna er þetta allt uppá við með tilkomu nýjasta appsins á símanum mínum. Ég er viss um það. Ég var að enda við að dúndra öllu mínu peningainfoi á símann og svo verð ég bara extra mikið dugleg að setja inn í hvert skipti sem ég hreyfi við peningnum eða debetkortinu (ég á ekki kreditkort af augljósum ástæðum). Svo getur maður sett þetta upp alveg eins og maður vill. Mæli með þessu!
PS: Ef þið lumið á app-uppástungum fyrir mig, einhverju sniðugu sem þið notið, þá eru slíkar uppástungur vel þegnar :)
PS2: Ef einhver getur gefið mér info um hvernig ég set lag sem hringitón þá væri það líka mest vel þegið :):):)









